Verslun Paintball.is

Framleiðendur

Verslunar og ábyrgðarskilmálar

Almennt: 

 Future ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

 

Afhending vöru:

Ekki eru allar vörur sem Future ehf selur, til á lager á Íslandi.  Við gefum okkur 7 virka daga til þess að útvega vörur, nema við gefum annað til kynna í tölvpósti eða síma.  Stundum eru vörur aðeins þrjá daga á leiðinni og stundum 7-10 daga.  Future ehf reynir eftir fremsta megni að láta viðskiptavini vita hvenær er von á vöru þeirra.  

Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Future ehf kaupir auka ábyrgðartryggingu á allar vörur með hærra verðmæti en 25.000 kr, sem fluttar eru til kaupenda með Íslandspósti. Verði vara fyrir tjóni frá því að hún er send frá Future ehf til kaupanda verður tjónið að fullu bætt.

 

 


Vöruskil á ógölluðum vörum:

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta (kreditreikningur) eftir að varan er móttekin. Inneignarnótan gildir í eitt ár frá útgáfudegi og er gild við almenn vörukaup nema á útsöluvörum eða vörum á sértilboði. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

 

Ábyrgð:

Allar almennar vörur eru seldar með tveggja ára ábyrgð til neytenda, en eins árs ábyrgð til fyrirtækja og er sölureikningur vörunnar ábyrgðarskírteini hennar. Ábyrgð er tekin á galla í vöru miðað við eðlilega notkun hennar ásamt varahlutum og vinnu. Rekstrarvörur svo sem málning, rafhlöður og slíkt eru seldar án ábyrgðar eða samkvæmt endingarmati framleiðenda þeirra.  Kaupandi þarf sjálfur að standa straum af kostnaði við að koma gallaðri vöru til viðgerðar og sækja hana úr viðgerð.

 

Takmörkun á ábyrgð:

Ábyrgð fellur úr gildi:

1. Ef aðrir en starfsmenn Future ehf hafa reynt að gera við vöruna án leyfis tæknimanna Future ehf

2. Ef varan hefur verið tengd við ranga spennu eða straumtengi eða notaðir rangir varahlutir.

3. Ef verksmiðjunúmer eða innsigli hafa verið fjarlægð eða rofin

4. Ef varan hefur orðið fyrir slæmri eða rangri meðhöndlun að mati tæknimanna Future ehf eða skemmst í flutningum

5. Varan hafi verið notuð við óviðunandi aðstæður

 

 

Ábyrgð er ekki tekin á:

1. Eðlilegu sliti vörunnar

2. Slæmri meðferð eða rangri meðferð.

3. Afleiddu tjóni vegna bilunar vöru.

 

Skilmálar verkstæðis / þjónustudeildar:

1. Vinna á verkstæði er samkvæmt tímagjaldi

2. Ef bilun kemur ekki fram við skoðun er innheimt sérstakt skoðunargjald

4. Ef vara sem komið er með til ábyrgðarviðgerðar reynist ekki biluð eða viðgerð fellur ekki undir ábyrgðarskilmála, þarf eigandi að greiða fyrir þann tíma sem farið hefur í viðgerðina.

Í öllum tilvikum er reynt að hafa viðgerðartíma sem stystan. Algengur viðgerðartími getur verið frá 3-6 virkum dögum, allt eftir verkefnastöðu verkstæðis hverju sinni.

 

Verð, skattar og gjöld:

Verð geta breyst án fyrirvara. Öll verð eru með 25,5% VSK og birt með fyrirvara um innsláttarvillur.

 

Trúnaður:

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

 

Eignarréttarfyrirvari:

Hið selda er eign seljanda þar til verðið er greitt að fullu. Samþykktir víxlar, skuldabréf eða greiðsla með ávísunum afnema ekki eignarréttinn fyrr en full greiðsla hefur borist.

 

Leiði lög um neytendakaup með ófrávíkjanlegum hætti til hagstæðari kjara fyrir viðskiptamenn en samningar þessir og skilmálar kveða á um, skulu þau lög gilda.

 

Skilmálar þessir eru verslunarskilmálar Future ehf og tóku gildi þann 1.janúar 2010.  Skilmálar þessir teljast samþykktir af hálfu viðskiptavinar(kaupanda) þegar viðskipti hafa átt sér stað á milli kaupanda og seljanda.


HeimHeim

Karfa  

(tóm)

Nýjar vörur

engar nýjar vörur þessa stundina

Sértilboð

engin sértilboð núna